ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR

News


Fréttir
Um samtökin
Lög
Starfið
Fundargerðir
Greinar


Íbúasamtökin á Facebook



Málþing með þingmönnum

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur buðu þingmönnum Reykjavíkurkjördæmis norður til málþings í Ráðhúsinu þriðjudaginn 12. febrúar 2019. Þá voru kjördæmadagar en þá er gert þinghlé svo þingmenn geti heimsótt kjördæmi sín. Öllum þingmönnum Reykjavíkur norður var boðið til málþingsins til að ræða við íbúa miðborgarinnar um þau málefni hverfisins sem að þeim snúa það er að segja með tilliti til lagasetningar um skipulagsmál, atvinnumál, velferðarmál og fleira. Á málþinginu gerðu þingmennirnir grein fyrir stefnu sinni í málum miðborgarinnar og svöruðu spurningum íbúanna um hvernig þeir hyggðust beita sér til hagsbóta fyrir hverfið.

Íbúasamtökin höfðu boðið til málþings með þingmönnum sínum á fyrri kjördæmadögum vetrarins í október 2018 en því var aflýst vegna dræmrar þátttöku þingmannanna en einungis þrír þingmenn af ellefu í Reykjavíkurkjördæmi norður þáðu boð ÍMR. Nú höfðu helmingi fleiri boðað komu sína og því var málþingið haldið.

Þingmenn sem tóku þátt í málþingi ÍMR voru:
Andrés Ingi Jónsson – Vinstri græn
Halldóra Mogensen – Píratar
Helga Vala Helgadóttir – Samfylking
Ólafur Ísleifsson - Utan flokka
Steinunn Þóra Árnadóttir – Vinstri græn
Þorsteinn Víglundsson - Viðreisn var veðurtepptur úti á landi svo Pawel Bartozek kom í staðinn fyrir hann

Umræður - upptaka

Tilbaka



Gömul mynd

Gamla myndin er af Graf Zeppelin-loftfari yfir miðbænum 1930. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur - Þjónustumiðstöðinni Skúlagötu 21 - 101 Reykjavík - midbaerinn@midbaerinn.is