ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR

News


Fréttir
Um samtökin
Lög
Starfið
Fundargerðir
Greinar


Íbúasamtökin á Facebook



Óleyfisframkvæmdir á Prikinu

Reykjavík, 20. mars 2012

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík
Borgartúni 12-14
105 Reykjavík

Málefni: Prikið, Bankastræti 12. Samþykkt á óleyfisframkvæmdum.

Á fundi stjórnar Íbúasamtaka miðborgar þann 20. mars sl. var ofangreint mál rætt og eftirfarandi samþykkt gerð:

Fyrir nokkrum árum voru reistar svalir í lokuðu porti veitingahússins Priksins Bankastræti 12 ásamt sorpgerði og geymslu án heimildar byggingarfulltrúa. Notkun svala þessarra að nóttu hefur falist í að rekstraraðili veitingahússins heimilar neyslu áfengra drykkja auk reykinga. Slík notkun er skýlaust brot á lögum, reglugerðum og samþykktum um áfengisveitingar.

Þrátt fyrir ítrekaðar kvartanir íbúa í nágrenninu vegna hávaða frá svölum þessum að nóttu til eftir að þær voru byggðar, gerist það á fundi byggingarfulltrúa þann 6.12.2011 að veitt er leyfi fyrir áður gerðum framkvæmdum.

Má vera að byggingarfulltrúi telji sér ekki skylt lögum samkvæmt að kynna sé grenndaráhrif bygginga er lúta að hávaða og truflun í nærumhverfinu. Íbúar borgarinnar þurfa að geta treyst því að ætíð sé hugað að grenndaráhrifum við útgáfu leyfa eins og þess sem hér um ræðir.

Stjórn Íbúasamtaka Miðborgarinnar gerir ennfremur athugasemd við ekki var leitað lögboðins álits húsafriðunarnefndar skv. 6. grein laga um húsafriðun nr. 104/2001 áður en umrætt leyfi var veitt.

Virðingarfyllst

fh. stjórnar Íbúasamtaka Miðborgar
Magnús Skúlason formaður

Afrit sent: Borgarstjóra
Skipulagsstjóra
Heilbrigðiseftirliti
Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins
Fjölmiðlum

Tilbaka



Gömul mynd

Gamla myndin er af Graf Zeppelin-loftfari yfir miðbænum 1930. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur - Þjónustumiðstöðinni Skúlagötu 21 - 101 Reykjavík - midbaerinn@midbaerinn.is