ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR

News


Fréttir
Um samtökin
Lög
Starfið
Fundargerðir
Greinar


Íbúasamtökin á Facebook



Nýr Landspítali

Reykjavík, 17. september 2012

Skipulagsráð Reykjavíkur
Borgartúni 12-14
105 Reykjavík

Mál: Athugasemdir við tillögu að deiliskipulagi á Landspítalareit dagsett 08. 03. 2012

Stjórn Íbúasamtaka Miðborgar mótmæla deiliskipulagtillögu að Nýjum Landspítala við Hringbraut vegna umhverfisáhrifa og ósamræmis við eldri byggð.

Við sameiningu Landspítalans á umræddri lóð verður til nokkurs konar borgvirki í útjaðri miðborgarinnar. Vandséð er hvernig slíkt borgvirki, sem er að stórum hluta sjálfu sér nógt um innri starfsemi, verður miðborginni til framdráttar.

Minnt er á að þegar núverandi staðarval var ákveðið var ráðgert mun minna byggingarmagn en nú er í vændum eða ríflega 120.000 m2 samtals. Við þessa meira en helmings stækkun teljum við að forsendur hafi breyst svo mikið, að þau umhverfis áhrif verði svo mikið meiri að ekki sé ásættanlegt.

Stjórn Íbúasamtakanna vill þó árétta að sameining spítalans á einn stað sé nauðsynleg en verulegar efasemdir hljóta að vakna um staðarval vegna aukin umfangs.

Þá er minnt á MENNINGARSTEFNU Í MANNVIRKJAGERÐ, stefnu íslenskra stjórnavalda í byggingarlist frá árinu 2007 þar sem segir á bls. 23: " Áhersla skal lögð á heildarmynd og mælikvarða þegar byggt er í og við eldri byggð. Til að tryggja heildrænt og sögulegt yfirbragð húsa, götumynda og byggðamynsturs er nauðsynlegt að stjórnvöld framfylgi skýrri stefnu þar um".

Ekki verður séð að við úrvinnslu deiliskipulagstillögunnar hafi verið tekið nægilega mið af þessarri opinberu stefnu en um það hlýtur þó að vera skýlaus krafa.

Tveir kostir eru í stöðunni. Annars vegar að laga mælikvarða og umfang fyrirhugaðara bygginga á Landspítalalóðinni að umhverfinu og laga innra skipulag og tæknilegar útfærslur að þeirri forsendu.

Af því tilefni má m.a. benda á tillögur byggðar á hugmyndum Páls Torfa Önundarsonar yfirlæknis sem kynntar voru Skipulagsráði þann 26. október sl. að ósk ráðsins. Sú tillaga snýst um mun minna byggingarmagn og að byggt sé á efri hluta lóðarinnar norðan Hringbrautar, þ.á.m. fullbygging og stækkun K- byggingar.Uppbyggingu sem gæti verið í meiri sátt við umhverfið og auk þess mun ódýrari lausn en framkominn tillaga, hugsanleg málamiðlun. Sú tillaga er reyndar einnig í takt við forsögn skipulagsráðs dagsett 8. 3. 2010.

Hins vegar að finna sjúkrahúsinu annan stað þar sem ytri aðstæður í umhverfinu takmarka ekki hæð og form fyrirhugaðra bygginga.

Sú útfærsla sem valin er í fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu er óásættanleg í núverandi mynd og getur ekki leitt til farsællar niðurstöðu.

Að lokum er bent á fyrri athugasemdir stjórnar Íbúasamtaka frá 4. október 2011.

Virðingarfyllst

fh. stjórnar Íbúasamtaka Miðborgar
Magnús Skúlason formaður

Tilbaka



Gömul mynd

Gamla myndin er af Graf Zeppelin-loftfari yfir miðbænum 1930. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur - Þjónustumiðstöðinni Skúlagötu 21 - 101 Reykjavík - midbaerinn@midbaerinn.is