ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR

News


Fréttir
Um samtökin
Lög
Starfið
Fundargerðir
Greinar


Íbúasamtökin á Facebook



Ályktun aðalfundar ÍMR um skipulagsmál

Borgarráð Reykjavíkur
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður

Ályktun:
Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur haldinn í Iðnó 15. október 2018 lýsir yfir vonbrigðum með að skipulagsyfirvöld í Reykjavík og þar með talið borgarráð taki ítrekað ekki til greina athugasemdir íbúa miðbæjarins í deili- og skipulagsmálum, oft um breytingar sem skerða hagsmuni og lífsgæði íbúanna verulega. Fundurinn skorar á borgarráð að taka meira tillit til almennra og víðtækra athugasemda íbúanna enda sé það í anda þess íbúalýðræðis sem er yfirlýstur vilji borgarstjórnar.

Greinargerð:
Mikil framkvæmdagleði ríkir nú í miðborg Rekjavíkur, hver stórbyggingin af annari rís  um þessar mundir og miklar breytingar hafa orðið á rekstri og þjónustu. Íbúar miðborgar Reykjavíkur hafa lengi setið uppi með þá súru tilfinningu að fyrirhugaðar breytingar á nærumhverfi þeirra séu illa kynntar og að lítið tillit sé tekið til athugasemda þeirra finnist þeim framkvæmdirnar skerða hagsmuni sína og lífsgæði enda virðast engar reglur gilda um það hvernig bregðast skuli við athugasemdum við skipulagsbreytingum aðrar en þær að þeim skuli svarað. Þau svör eru oft í skötulíki eins og túlkun skipulagsyfirvalda á því hvað teljist til meiriháttar breytinga í rekstri en dæmi eru um að málningavöru- og matvöruverslunum sé breytt í háværa næturklúbba án þess að nágrönnum gefist nokkur kostur á að tjá sig um það. Tvö dæmi um afgreiðslu skipulagsráðs skulu hér tíunduð en það eru nýlegar deiliskipulagsbreytingar sem varða Barónsstíg 28 og Hallveigarstíg 1 en þær eru á margan hátt dæmigerðar fyrir afgreiðslu skipulagsyfirvalda á breytingatillögum.

Barónsstígur 28
Saga byggingaframkvæmda á Barónsstíg 28 er umhugsunarverð en þar stóð áður friðað hús, byggt 1905. Sóst var eftir því að fá að rífa það eða flytja burt og mótmæltu Íbúasamtök Miðborgar þeim fyrirætlunum árið 2013. Ekkert gerðist um tveggja ára skeið nema það að húsið varð að dópgreni eða afdrepi fyrir útigangsfólk en árið 2015 var gefið leyfi til að byggja fjölbýlishús, fjórar hæðir og kjallara með tíu íbúðum og er það sú bygging sem nú er risin en friðaða húsið var fjarlægt. Sótt var um leyfi 2016 til að breyta húsinu í gististað í flokki II, með 10 gistieiningum en því var synjað. Þessi krafa eigendanna rís enn á ný 2017 enda voru þeir byrjaðir að reka gististarfsemi í húsinu ólöglega. Ekki er gott að sjá hversvegna ljáð var máls á breytingunni en skipulagsráð samþykkti hana þrátt fyrir fjölda athugasemda frá nágrönnum og frá Íbúasamtökum Miðborgar og yfirlýsta stefnu borgaryfirvalda um að ekki yrði gefin leyfi fyrir fleiri hótelum í miðborginni. Í athugasemdum Íbúasamtakanna sagði m.a:

„Fólk þarf að geta treyst því að ákvarðanir stjórnvalds standi, sérstaklega ef það varðar búsetu þess en íbúðakaup eru stærsta fjárfestingin í lífi flestra. Nágrannar og aðrir íbúar í miðborginni gera þá kröfu til skipulagsyfirvalda í Reykjavík að þau framfylgi stefnu borgarinnar um að ekki rísi fleiri hótel í miðborginni, að umsókn um gististarfsemi í húsinu verði aftur synjað og að yfirlýstur tilgangur þessarar byggingar um að hún verði fjölbýlishús standi.“

Ekkert mark var tekið á athugasemdum nágranna og ÍMR.

Hallveigarstígur 1
Nýlega var samþykkt deiliskipulagsbreyting á reit sem afmarkast af Skólavörðustíg, Bankastræti, Ingólfsstræti, Hallveigarstíg og Bergstaðastræti um að leyfa útveitingastað norðan við Hallveigarstíg 1 (húsið þar sem Bónus og Samfylkingin hafa aðsetur). Þarna í kring er þétt íbúabyggð og þegar nágrannarnir fengu veður af þessari breytingartillögu fóru 20 þeirra fram á að hún yrði grenndarkynnt á öllum reitnum því slík starfsemi hefði óhjákvæmilega mikil áhrif á nærumhverfið en nágrannarnir hafa mikla reynslu af útiveitingastöðum og því ónæði og ágangi sem þeim getur fylgt. Þeirri beiðni var ekki einusinni svarað. Hátt á þriðja tug athugasemda bárust úr nánast öllum húsum í nágrenninu en allt kom fyrir ekki, deiliskipulagsbreytingin var samþykkt þó engin knýjandi nauðsyn sé á því að koma upp veitingastað á þessum stað því nú þegar eru tíu veitingastaðir fyrir á reitnum og í næsta nágrenni við reitinn er einnig fjöldi veitingastaða.

Lokaorð
Íbúar miðborgarinnar eru hugsandi yfir afgreiðslu þessara tveggja mála og reyndar fleiri mála sem ekki verða tíunduð hér en snúa mörg hver að hótel- og veitingahúsavæðingu miðborgarinnar. Á aðalfundinum lýstu margir yfir furðu sinni á því hve léttvægar athugasemdir íbúanna virðast vera þegar kemur að skipulagsbreytingum. Stjórn Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur skorar á Borgaráð Reykjavíkur að gera bragarbót í þessum efnum.

Reykjavík 23. október 2018

F.h. Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur
Benóný Ægisson formaður

Tilbaka



Gömul mynd

Gamla myndin er af Graf Zeppelin-loftfari yfir miðbænum 1930. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur - Þjónustumiðstöðinni Skúlagötu 21 - 101 Reykjavík - midbaerinn@midbaerinn.is