Listaháskólinn
Íbúar í miðborg Reykjavíkur hafa margir lýst sig mótfallna því að verðlaunatillaga að Listaháskóla Íslands rísi óbreytt á reit við Laugaveg/Frakkastíg/Hverfisgötu. Íbúar mótmæla stærð hússins og hversu illa það samræmist þeim fínlega mælikvarða sem finna má í nágreninu. Íbúar mótmæla niðurrifi góðra og gamalla borgarhúsa við Laugaveg.
Íbúasamtökin hafa fagnað þeirri ákvörðun að Listaháskóli Íslands komi í miðborgina, en gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunatillöguna. Samþykkt Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur má lesa í fullri lengd hér.
Þeir sem taka undir ofangreind mótmæli geta skráð sig hér og ef þú vilt sjá hverjir hafa þegar skráð sig á listann smellið hér