Fundur
Íbúasamtaka Miðborgar
Mættir:
Sigtryggur Magnason, Kári Halldór, Magnús Skúlason, Hlín Gunnarsdóttir,
Kristinn Jóhannesson, Eva María Jónsdóttir, Gylfi Kristinnsson (mættur 8.35).
Kári víkur af
fundi 8.50.
Fjarverandi: Fríða Björk Ingvadóttir, Ólafur Egill Egilsson, Eyrún
Magnúsdóttir.
1.
Stjórn skiptir
með sér verkum:
Gjaldkeri: Hlín
Gunnarsdóttir
Ritari:
Sigtryggur Magnason.
Hlín er falið að
ná í kennitölu og stofna reikning fyrir Íbúasamtök Miðborgar.
2.
Þann 3. maí n.k.
er íbúaþing.
Ath. Hvort
einhver geti komið á fund stjórnar til að kynna íbúaþingið og gera grein f.
hvernig þátttöku íbúasamtaka Miðborgar verði háttað og hvernig íbúasamtökin
geta sem best nýtt þingið til að koma sínum hagsmunamálum áfram. Eva gerir það.
3.
Magnús: Vill setja
stopp á framkvæmdir og setja á “Hverfisvernd”.
Kári Halldór vill
að þetta verði ályktun fundarins í dag.
Deiluskipulag
veitir ekki byggingarétt. Maður veðsetur ekki byggingarrétt eða deiliskipulag.
Aðalskipulag og Deiliskipulag eru áætlanir en ekki kvaðir.
Sammælst um að
Íbúasamtökin verði ekki eins málefnis kverúlantahópur. Sérstaða í okkar hverfi
er mikil og því er hverfisverndin forgangsatriði fyrir okkur að leggja fram á
Hverfisráðsfundum. Og endurskoðun á öllum skipulagstillögum. Jákvætt talið að vinna
með Vesturbæjarsamtökunum. (Tala við Gísla Þór Sigurþórsson, formann
íbúasamtaka Vesturbæjar).
4.
8-9. maí er hreinsunarátak
fyrirhugað.
Rædd hugmynd um
að íbúasamtök reyni að ná samningi um hagstæð málningarkaup fyrir íbúa
miðborgarinnar, vegna sérstöðu hverfisins, sem tekur á móti fleiri gestum en
önnur og þarf að vera sómasamlega útlítandi.
Sigtryggur og
Magnús fara í að skoða hvernig við fáum fyrirtæki til að gefa málningu.