Stjórnarfundur 7.
apríl 2008.
Mættir: Kári
Halldór, Hlín Pétursdóttir, Gylfi Kristinsson, Eva María Jónsdóttir, Kristinn
Jóhannsson, Egill Ólafsson (fulltrúi Ólafs Egils Egilssonar), Eyrún
Magnúsdóttir, Fríða Björk Ingvarsdóttir.
- Að selja deiliskipulag. Er það
löglegt? Dæmi á Þórsgötu núna. Verð f. verktaka. Að efnahagsgera
deiliskipulag, sem er áætlun. Áhættufjárfestingar. Byggingarréttur er ekki
deiliskipulag. Að búa til efnahag útúr engu. Þarf að kippa öllu
deiliskipulagi úr liðnum og byrja uppá nýtt. Sömu rök gilda ekki fyrir
íbúa og þá sem kaupa lóðir í Miðborg. Fasteignasalar mega selja
útsýnisgæði en við megum ekki taka pening fyrir rýrð útsýnisgæði.
Sveitarfélögunum ber að tryggja réttaröryggi. Á því er misbrestur og því
verða íbúar að koma okkar kröfum á framfæri. Á næsta fundi þarf að semja
ályktun.
- ER hægt að koma x húsum í miðborg í
gott stand innan x ára? Þarf að stórefla sjóðina, sem hjálpa fólki með
ytra byrði húsa. Í KBH borga menn ekki fasteignagjöld á meðan að verið er
að koma húsinu í samt lag. Þessi tillaga gætu íbúasamtök lagt til við
Borgaryfirvöld.
- Þegar íbúasamtökin geysast fram með
fjórblöðungi, með upplýsingum, greinum, hvatningum um að gera upp húsin og
þá kynnum við átakið. Setja fram einhverja forgangsröð sem íbúasamtökin
geta sameinast um. Auglýsum eftir fólki sem er áhugasamt um taka þátt í
málefnastarfi Íbúasamtakanna. Lýsum eftir lögfræðingi sem getur unnið með
okkur.
- Kristinn opnar síðu fyrir næsta fund.
Miðborgin.is. Finna út hver vill hýsa síðuna fyrir lítinn sem engann
pening.
- Hvernig er hægt að uppræta tengsl
verktaka og pólitíkusa? Hafa pólitíkusarnir búið til þetta umhverfi og
verktakadekur. Okkar fulltrúar pólitíkusarnir eiga að verja okkar hagsmuni
en taka um leið við peningum sem vega að hagsmunum íbúanna. Í borgum
erlendis er buffer, sem tekur faglegar ákvarðanir útfrá. Leggjum til að
stjórnsýslunni sé breytt, þannig að skilið sé á milli þessara tveggja
hlutverka.
- Er nægileg vernd á hverfinu okkar með
þeim lögum sem nú eru í gildi? Markmið íbúasamtakanna hlýtur að vera að
búa til borg, sem er skipulögð þannig að ekki sé endalaust gengið á rétt
þeirra sem í henni búa. Gera íbúum grein fyrir því hvaða reglugerðir og
lög séu virk.
- Kristinn: Við ættum að þrýsta á um að
farið verði eftir þeirri vernd sem er á miðborginni skv. Þróunaráætlun
Miðborgarinnar. Kári Halldór trúir ekki á að það dugi. Eina sem dugir á
borgina eru lögin. Segir þurfa umboðsmann skipulagsmála. Spurning um að
stinga uppá umboðsmanni Miðborgarinnar?
- Kristinn stingur uppá að settur verði
á laggirnar sjóður, sem borgarar gætu sótt í til að láta gera
skipulagstillögur. Minnir á að hlutfall af skipulagsgjaldi, sem er hugmynd
Gests frá því á stofnfundinum.
- Eyrún: Listar yfir hús sem standa
auð. Skipulagssjóður á mikið af eignum í miðborginni, sem ekki hefur verið
haldið við. Skýrir hvers vegna borgin er ekki æst í að ráðast gegn öðrum
eigendum. Skipulagssjóður hefur ekki verið til fyrirmyndar. Íbúasamtök
ættu að kanna það og skora á borgina að hafa það í lagi.
- Gylfi Kristinsson: Virðist sem
skipulagsyfirvöld vinni eftir lögum sem eru ekki lengur í gildi. Við ættum
að koma því til leiðar að menn fari að vinna eftir gildandi lögum.
Gildandi lög bjóða uppá ýmsar leiðir til að hafa áhrif, gera tillögur og
að virk samvinna sé sett á milli yfirvalda og íbúa.
- Ófrágengin lóð við Þjóðleikhúsið.
Gæti ekki liðist í öðrum hverfum.
- Varðandi deiliskipulag: Við íbúarnir
eigum tillögu og sjónarmiðarétt, ekki athugasemdarétt. Þeir sem gera
deiliskipulag eiga að vinna samanburðartillögur. 4. mgr 9. gr.
skipulagslaganna. Ef borgin er að gera deiliskipulagsvinnu, þá eiga
íbúarnir rétt á að láta vinna alternative tillögu.
- Eyrún kynnir tillögur kvenna við
laugaveginn undir yfirskriftinni: Vor í Miðborginni.
- Egill: Íbúasamtök beiti sér fyrir því
að þrýstingur á stjórnvöld valdi því að húseignir í miðborg verði settar í
gott stand, fullkomið stand.
- Eyrún: höfum við nógu góða mynd af
því hvað íbúum í miðborg finnst um miðborgina, hverfið sitt? Ath. Grafa
upp könnun Capacent. Safna upplýsingum. Til að vita hvernig við mörkum
okkur stefnu.
- Hlín: Fasteignamat ríkisins getur
unnið statistík f. okkur t.d. um hvað búa margir og hvað eiga margir.
Hverfisráð Miðborgar og hlíða ætti að finna þessar upplýsingar f. okkur.
- Næstu skref: Ályktun um Hverfisvernd,
Málefnahópar, Fjórblöðungur, Málþing um skipulag í Miðborg,
Viðhorfskönnun, Samanburðarvinna (t.d. hvaða reglur fylgja því að búa í
miðborg Kaupmannahafnar).
- Fríða segir að með hverri íbúð sem
keypt er í Berlín, fylgi bók sem fjallar um skyldur borgaryfirvalda
gagnvart íbúa íþessari íbúð. Þetta er gert til að koma í veg fyrir brask.
Borgin tryggir að íbúarnir hafi efni á að búa í borginni. Borgin hefur
ekki leyfi til að skerða lífsgæði íbúanna. Getur enginn laumað sér inn í
hverfi með rekstur sem breytir lífsgæðum þeirra sem fyrir búa. Á að vera
leikvöllur í hverri einustu blokk. Börn eru semsagt viðurkenndir íbúar.
Tímarammi á allt og ef ekki gengur eftir ber borginni að borga sínum
borgurum skaðabætur.
- Búa til langtímamarkmið,
skammtímamarkmið, stefnumótandi markmið (óræð), Finna spurningar til að
kynnast viðhorfum íbúanna í Miðborg. Íbúasamtök geta gert kröfur um að
ekki sé gengið á rétt íbúanna, vitandi vits.
- Fá Hjörleif Stefánsson á fund til
okkar til að kynna okkur nefndarstarf.
Fundi slitið kl: 19.11.