Bókun stjórnar íbúasamtaka Miðborgarinnar um verðlaunatillögu LHÍ:

 

Stjórn Íbúasamtaka miðborgarinnar fagnar þeirri ákvörðun að Listaháskóli Íslands komi í miðborgina. Stjórnin telur hins vegar framkomna verðlaunatillögu óheppilega á fyrirhuguðum stað,  þar sem hún gerir ráð fyrir byggingarmagni sem er langt umfram það sem samþykkt er í deiliskipulagi. Telur stjórnin að svo stór bygging á þessum stað við Laugaveg, stingi verulega í stúf við þá byggð sem fyrir er og fari gegn yfirlýstri stefnu borgaryfirvalda um að varðveita götumynd Laugavegarins og Menningarstefnu í mannvirkjagerð, sem gefin var út af Menntamálaráðuneytinu, þar sem lögð er áhersla “á heildarmynd og mælikvarða þegar byggt er í og við eldri byggð”. Stórbygging á þessum stað rýrir auk þess umhverfisgæði þeirra sem búa í nágrenninu. Stjórnin leggur ríka áherslu á að fullt samráð verði haft við íbúa svo sem lög og reglugerðir kveða á um, en framkomin tillaga kallar á nýtt deiliskipulag fyrir reitinn. Stjórn íbúasamtakanna hvetur borgaryfirvöld til að finna leið til að aðlaga byggingu Listaháskólans að þeim fínlega mælikvarða sem fyrir er við Laugaveginn eða finna byggingunni hentugri stað í miðbænum.